Talsvert er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu og freista sýnileg verðmæti þeirra mest. Mynd: photos.com
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill vara eigendur og umráðamenn ökutækja við að skilja ekki verðmæti eftir í bílum. Talsvert sé um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðin og segir í tilkynningu lögreglunnar að þjófum sé ekkert heilagt og þeir steli jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta.
Enn eru það þó einkum GPS-tæki, myndavélar og tölvur sem freista þjófa en þetta verða eigendur og umráðamenn ökutækja að hafa hugfast þegar gengið er frá bifreiðum að mati lögreglu. Sé óumfrýjanlegt að skilja verðmæti eftir í ökutækjum sé mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.
Sömuleiðis bendir lögreglan á mikilvægi þess að skilja bíla frekar eftir á upplýstum bílastæðum, ef þess er nokkur kostur. Þjófum finnst nefnilega fátt betra en að athafna sig í myrkrinu þar sem ekki sést til þeirra.





Fanney Þorbjörg: „Ég ætla aldrei að æfa skíði aftur“
Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla