ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Skugginn á Hverfisgötu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:46 › 7. desember 2009
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri

Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri MYND Sigtryggur Ari

Morgunblaðið greindi frá því á föstudaginn að ástralski leikstjórinn Benedict Andrews myndi leikstýra Lé konungi eftir Shakespeare hjá Þjóðleikhúsinu á næsta leikári. Margir þeirra sem stunda leikhúslífið hér á landi eru farnir að þykjast sjá ýmislegt sem Borgarleikhúsið gerir ganga aftur í líkri mynd í Þjóðleikhúsinu.

Opnar áheyrnarprufur fyrir söngleiki eru til dæmis nokkuð sem tíðkast hefur í fyrrnefnda leikhúsinu í langan tíma og ákvað Þjóðleikhúsið að bjóða upp á slíkt hið sama nýverið fyrir söngleikinn Óliver. Kynningarrit leikhússins við Hverfisgötuna fyrir þetta leikár þótti keimlíkt sams konar riti sem leikhúsið við Kringluna gaf út í fyrra, og gjörningurinn að fá erlendan leikstjóra til að leikstýra uppfærslu eru nýjustu líkindin. Síðastliðið sumar tilkynnti Borgarleikhúsið nefnilega að litháíski leikstjórinn Oskaras Koršunovas myndi stýra uppfærslu þess á Ofviðri Shakespeares um jólin 2010.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.