ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Rússneska mafían lét blaðakonu hverfa eftir frétt

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:37 › 7. desember 2009
Susan Walsh

Susan Walsh

Hvarf bandaríska rithöfundarins Susan Walsh árið 1996 er talið tengjast skrifum hennar um erlenda nektardansmær sem starfaði í New Jersey í Bandaríkjunum en talið var að hún væri í þrældómi rússnesku mafíunnar í borginni. Hefur rússneska mafían legið undir grun vegna hvarfs Susan en ekkert hefur spurst til hennar síðan hún yfirgaf heimili sitt í júlí árið 1996 en eftir voru eiginmaður hennar og ellefu ára gamall sonur þeirra.

Faðir hennar segir frétt hennar um nektardansmærina hafa sett Susan í stórkostlega hættu og sagði hún við hann að mafían hefði í bígerð að myrða hana. Faðir hennar segir hana hafa óttast um líf sitt og hafi byrjað að drekka aftur eftir að hafa verið edrú í ellefu ár.

En Susan var ekki einungis efnilegur blaðamaður því hún átti erfitt með að gefa eftir aukavinnu sína sem aflaði henni góðra tekna. Susan starfaði sem dansmær í næturklúbbi í New York. Með því að dansa á stöðunum sló hún tvær flugur í einu höggi því hún eignaðist töluvert af fé til að halda uppi syni sínum og þaðan fékk hún upplýsingar um mannsal og þrældóm rússnesku mafíunnar.

Ekki er vitað hvort Susan er á lífi í dag. Grunur um að rússneska mafían hafi átt þátt í hvarfi hennar er ennþá byggður á sögusögnum og er ekki vitað hvort Susan lét sig einfaldlega hverfa. Lögreglan heldur þó áfram að leita hennar ef að nýjar upplýsingar koma fram í málinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.