ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Ósmekkleg jólamús innkölluð í Bretlandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:31 › 7. desember 2009
Engu líkara en að leikfangamúsin syngi Paedophile í stað Jingle Bells.

Engu líkara en að leikfangamúsin syngi Paedophile í stað Jingle Bells. Mynd af vef The Sun

Leikfangamús var innkölluð í Bretlandi eftir að foreldrar kvörtuðu yfir því að hún syngi „paedophile, paedophile“, (barnaníðingur), í stað „jingle bells.“

Leikfangamúsin er framleidd í Kína og dreifingaraðilinn í Bretlandi, Humatt, í Dorset, sagði að sá sem sér um sönginn hafi verið ófær um að framleiða ákveðin hljóð. Í viðtali við breska slúðurblaðið The Sun sagði talsmaður fyrirtækisins að söngvarinn segði örugglega „Jingle Bells“, það hefði komið í ljós þegar hægt var á laginu, „en við höfum innkallað þær [leikfangamýsnar] til að koma í veg fyrir að fólki verði misboðið.

Myndband af leikfangamúsinni sem misbýður Bretum má sjá á vef The Sun með því að smella hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.