ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Ögmundur: Gæsagangur í Garðabæ

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:50 › 7. desember 2009

„Hlýðni og undirgefni, hugsunarlaus viðbrögð við skipunum, er einmitt sú meinsemd sem varð völd að efnahagshruninu sem við súpum nú seyðið af. Má ég frekar biðja um fulla meðvitund og vakandi dómgreind - jafnvel þótt það þýði eitthvert misræmi í göngulagi endrum og eins,“ skrifar Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, á heimasíðu sína um ályktun sem Samfylkingingin í Garðabæ sendi frá sér um Icesave málið í nýliðinni viku. Í tilkynningunni eru Vinstri grænir hvattir til að taka þingflokk Samfylkingarinnar til fyrirmyndar og ganga í takt og í samræmi við ríkisstjórnarsáttmálann.

Ögmundur segir prýðilega samstöðu hafa ríkt innan Vinstri grænna um þau grunngildi sem hreyfingin hvílir á. „Hvað ríkisstjórnarsáttmálann áhrærir þá kappkosta menn að virða hann jafnframt því sem hann er mátaður inn í þessi grunngildi. Í þessu er þó ekki allt klippt og skorið frekar en lífið sjálft. Oft þarf að beita dómgreind og pólitísku mati þegar einstök mál koma upp. Síðan er því ekki að leyna að við búum við ákveðna mótsögn í samþykktum okkar og starfi. Annars vegar erum við með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn inni á gafli án þess að fyrir þeirri staðreynd sé klappað kvölds og morgna innan stjórnarflokkanna. Af fúsum og frjálsum vilja er svo á dagskrá að vera sú velferðarstjórn sem við lofuðum landsmönnum, í anda þess sem best gerist á Norðurlöndum,“ skrifar Ögmundur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.