Í brýnu sló á milli stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar og lögreglunnar í Tehran í Íran í dag, þegar þúsundir aðgerðasinna efndu til mótmæla gegn stjórn sem þeir telja ólöglega.
Óeirðalögreglan beitti táragasi og kylfum gegn mótmælendum við tvö helstu torg borgarinnar og öryggissveitir fylktu liði á götum úti og lokuðu aðgengi að háskólum. Samkvæmt fregnum hafa öryggissveitir hleypt af skotum upp í loftið, en tókst ekki að koma í veg fyrir að námsmenn mótmæltu á háskólalóðum í höfuðborginni og víðar í Íran.
Stjórnvöld lokuðu fyrir internetmiðla og farsímaþjónustu sums staðar, en engu að síður bárust nokkrar óskýrar myndir út fyrir landið. Á þeim mátti sjá sitjandi mótmæli, mótmælagöngur og gervijarðarfarir, og myndir sem sýna fólk brennandi myndir af Ali Khamenei erkiklerk og æðsta leiðtoga landsins.





Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu