ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Komast í pósthólfið sitt hvar sem er

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:13 › 7. desember 2009
Indriði hefði ekki þurft að biðja um svar AGS á einkapósthólf sitt því hann hefur aðgengi að vefpóst ráðuneytisins.

Indriði hefði ekki þurft að biðja um svar AGS á einkapósthólf sitt því hann hefur aðgengi að vefpóst ráðuneytisins.

  • Indriði H. Þorláksson. Póstur hans til fulltrúa AGS á Íslandi endaði á Wikileaks.

    Indriði H. Þorláksson. Póstur hans til fulltrúa AGS á Íslandi endaði á Wikileaks.

Starfsmenn Stjórnarráðsins komast í póstinn sinn hvar sem er í heiminum í gegnum netfangið postur.stjr.is en fram kom í máli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á Alþingi í hádeginu að Indriði H. Þorláksson hefði útskýrt að vegna ferðalaga sinna hefði hann óskað eftir að fulltrúi AGS sendi tölvupósta á einkanetfang sitt, en ekki póstfang fjármálaráðuneytisins, þar sem hann hefði ekki aðgang að tölvupósti ráðuneytisins.

Indriði á því að vera með aðgang að tölvupósti sínum í ráðuneytinu ef hann hefur á annað borð aðgang að nettengdri tölvu. Það virðist því vera misskilningur hjá Indriða að hann hefði ekki greiðan aðgang að svarpósti AGS á ferðalagi sínu.

Einar Karl Haraldsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að skeyti Indriða til Mark Flanagan hafi verið sent úr tölvupósti stjórnarráðsins og svar frá honum barst einnig þangað og eru þar vistuð. „Það er því engin hætta á að samskiptin fari fram hjá skjalakerfi ráðuneytisins,“ segir Einar Karl. Hann segir þessi tölvupóstsamskipti öll hafa verið skráð og lögð fram sem gögn til þingmann í sumar þó sumir þykist vera að sjá þetta í fyrsta skipti í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.