Kíló af kjöti á klukkustund
Inntökupróf í KG-klúbbinn svokallaða fer fram á veitingastaðnum Ömmu Habbý á Ísafirði á miðvikudag. Til að standast inntökuprófið þurfa einstaklingar sem vilja komast í KG-klúbbinn að innbyrða eitt kíló af kjöti á innan við klukkustund. Ekki nóg með það heldur þarf að borða hnefafylli af meðlæti af eigin vali með. Þeir sem undirgangast þessa þolraun þurfa að að lúta ákveðnum reglum en í þeim felst að ekki er heimilt að kasta upp kjöti á meðan þolrauninni stendur og verður kjötið að vera eitt kíló af þyngd eftir eldun.
Ýmsir hafa þreytt þessa þolraun og staðist hana en aðrir hafa einfaldlega gefist upp. Varað er við ýmsum kvillum sem kunna að fylgja því að innbyrða svo mikið magn af kjöti á svo skömmum tíma en meðal þess er þarmastífla, þvagfæragigt, nýrnabilun, hjartaáfall og ýmis önnur mein sem geta hent þá sem reyna við inntökuprófið.
En vakna þó spurningar hvort að klúbbur sem gengur út á að éta óhóflegt magn af kjöti sé ekki rétti andinn á þessum síðustu og verstu tímum. Stofnendur KG-klúbbsins segjast geta fallið á þau sjónarmið en benda á að þetta sé til gamans gert og í raun ekkert frábrugðið því að ganga um í rándýrum tískufötum, klífa tinda eða drekka dýr vín. Allt er þetta viss afþreying sem flokka mætti sem óþarfa, bruðl og óhóf, segja forsprakkar klúbbsins.
Alls hafa fimm boðað komu sína í inntökuprófið en aldurstakmark er átján ár og þurfa þeir sem þreyta inntökuprófið að skrifa undir yfirlýsingu að þeir geri sér grein fyrir þeim kvillum sem þeir geta hlotið af því að borða svo mikið kjöt á svo skömmum tíma.
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 23:20
4 ára strákur datt í það og „stal jólunum“
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 22:54
Enn hnuplað úr verslunum í aðdraganda jólanna
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 22:48
4 bíla árekstur á Miklubraut
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 22:30
Öfundsjúkur skar eyrað af manni með sveðju
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 21:41
VR: Hatrömm barátta um völd
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 21:09
Jóhanna og Angela ræddu um ESB og efnahaginn
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 20:48
Móðir fór á Twitter á meðan sonurinn var að deyja
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 20:08
Myrti dóttur sína af trúarlegum ástæðum
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 18:51
Of feitur til að drepa en ekki til að vera dæmdur
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 17:29
70% vilja að Alþingi synji ríkisábyrð á Icesave
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 17:20
Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 17:12
Fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun í húsasundi
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 17:05
Dæmdur fyrir að skilja gúmmíbolta eftir í leggöngum konu
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 16:57
Bannað að blóta á BBC
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 16:20
Segir Woods vera barnsföður sinn
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 15:22
Tekinn með marijúana, amfetamín og stolinn bíl
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 15:01
Öryrki vann í lottóinu: Öskraði og hljóp til móður sinnar
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 14:44
Hrinti stelpu sem svívirti föður hans
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 14:37
Dorrit: Íslendingar ættu að vera fullir sjálfstrausts
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 13:52







