ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Galli í DVD útgáfu Fangavaktarinnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:35 › 7. desember 2009

Fangavaktin með Jón Gnarr og félögum kom út á DVD í síðustu viku en komið hefur í ljós galli í framleiðslunni. Allir óseldir diskar í búðum hafa verið innkallaðir og þeir sem hafa keypt sér eintak geta skilað því í verslanir Skífunnar.

Galli þessi lýsir sér þannig að um miðjan síðasta þátt lendir áhorfandinn óvænt inn í aukaefni disksins í stað þess að þátturinn haldi áfram.

„Þetta er því miður galli sem enginn gat séð fyrir og kemur fram þrátt fyrir að hafa ítrekað farið í gegnum skoðun áður en hann var sendur í framleiðslu.

Af þessum ástæðum höfum við innkallað alla diska sem eru óseldir í búðum og munum dreifa nýjum diskum í vikunni. Það ættu að vera komnir nýir diskar í allar verslanir n.k. fimmtudag. Við biðjum alla þá sem versluðu diskinn að skipta honum í þeirri verslun sem þeir keyptu hann eða í Skífunni Kringlunni eða Laugavegi,“ segir í tilkynningu frá Senu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.