„Það er enginn klofningur hjá meirihlutanum í bæjarstjórn,“ sagði Guðmundur Þorgrímsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, í samtali við DV en kvisast hefur út að Framsóknarmenn sem mynda meirihluta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar ásamt Fjarðalistanum, séu klofnir í afstöðu sinni vegna áforma um að loka skrifstofu sveitarfélagsins í Neskaupstað um áramót en talið er að framtíð meirihluta samstarfsins gæti ráðist á meirihluta fundi sem hefst klukkan 20:00 í kvöld.
Málið er afar eldfimt í Fjarðabyggð og hefur Benedikt Sigurjónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknar, sagt sig úr öllum ráðum og nefndum sem hann hefur átt sæti í fyrir Framsókn í Fjarðabyggð.
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti samhljóða að leggja niður skrifstofurnar á Norðfirði og sú ákvörðun var líka samþykkt fundi hjá meirihlutaflokkunum.
Helstu ástæður lokuninnar voru þær að um hagræðingu væri að ræða þar sem á næstu tíu til ellefu árum myndu sparast 160 milljónir króna. Einnig er ein af ástæðum fyrir lokun skrifstofunnar á Norðfirði sögð vera slæmt ástand húsnæðisins og er það sagt ekki halda vatni.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning