ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

„Áætlun AGS er brostin“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:13 › 7. desember 2009

Mark Flanagan, sem fer með mál Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, gat ekki komið fram með nægjanleg rök fyrir hóp Íslendinga til að sannfæra þá um ágæti áætlunar AGS fyrir Ísland, en Flanagan og Franek Rozwadowski sátu fund með hópnum í Seðlabankanum fjórða desember síðastliðinn.

„Okkar mat er að engar forsendur séu til staðar svo viðkomandi grundvallaratrið verði að raunveruleika. Af því leiðir að áætlun AGS er brostin. Flanagan tókst ekki að hnika til sannfæringu okkar. Því miður þá sjáum við ekki neina vitglóru í áætlun AGS," segir í samantekt sem hópurinn hefur sent fjölmiðlum.

Hópurinn segir Flanagan ekki hafa sýnt með rökum að að vöruskiptajöfnuður Íslands verði jákvæður um það bil 160 milljarða á ári næstu tíu árin, að tekjur ríkisins aukist um 50 milljarða á ári næstu árin og að landsframleiðsla aukist næstu árin. Er Flanagan var spurður hversu hátt skuldaþol Íslands af vergri landsframleiðsu getur orðið segir hópurinn Flanagan hafa snúið út úr þeirri spurningu og ekki hafa gefið skýrt svar.

Fundinn sátu fyrir hönd íslenska hópsins: Gunnar Sigurðsson, Heiða B.Heiðarsdóttir, Ásta Hafberg, Einar Már Guðmundsson, Helga Þórðardóttir, Gunnar Skúli Ármannsson, Lilja Mósesdóttir, Elías Pétursson, Ólafur Arnarson.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.