Mörg af fínustu og þekktustu vínum veraldar verða boðin upp á næstunni þegar forsvarsmenn La Tour d‘Argent veitingahússins í París rýmir fyrir nýjum guðaveigum í vínkjallara sínum. 221 árs gamal koníak verður meðal þeirra átján þúsund flaskna sem boðnar verða upp.
Með uppboðssölunni vonast Andre Terrail, eigandi LaTour d‘Argent, til að safna einni milljón evra til að endurnýja vínkjallara veitingastaðarins og tryggja að veitingahúsið haldi Michelin-stöðu sinni.
Vínlisti staðarins er heldur betur veglegur, því hann telur 400 blaðsíður á uppboðinu. 450 þúsund flöskur af áfengi eru í vínkjallaranum þannig að hann verður ekki beinlínis tómur eftir uppboðið.
Búist er við að sumar flöskur fari á allt að fimm þúsund evrur, sem jafngildir um 915 þúsund krónum.
Ágóðinn af sölunni á elstu flösku hússins, koníaksflösku frá 1788 sem verðlögð er á 2,500 evrur, fer óskiptur til góðgerðarmála.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu