Íhaldsmenn innan Hollywood-senunnar krefjast þess nú að Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, skili Óskarsverðlaununum sem hann hlaut fyrir heimildarmynd sína An Inconvenient Truth. Ástæðan sé gróðurhúsaáhrifaskandallinn, eða Climategate eins og hann er kallaður, þar sem komið hefur í ljós að fræðimenn hafi falsað niðurstöður um hnattræna hlýnun og skipulagt alsherjar samsæri um að hylma yfir sannleikanum.
Í ljósi þeirrar rannsóknar sem nú stendur yfir á tölvupóstsendingum breskra fræðimanna, telja Roger Simon og Lionel Chetwynd, sem báðir eru meðlimir Akademíunnar sem veitir Óskarsverðlaunin, að mynd Gore sé byggð á skáldskap, ekki heimildum.
Báðir eru Simon og Chetwynd hægrimenn sem löngum hafa haft uppi efasemdir um hnattræna hlýnun af mannavöldum í Bandaríkjunum.
Dagblaðið LA Times segir kröfu þeirra félaga vonlausa baráttu, og Simon sjálfur viðurkennir að hann hafi aldrei fyrr vitað til þess að einhver hafi verið sviptur Óskarsverðlaunum sínum. Akademían hafi hins vegur heiður sinn að veði í málinu.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus