ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Tamílum veitt frelsi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:30 › 3. desember 2009
Frelsinu fegnir. Tamílar streyma út úr kyrrsetningarbúðum á Sri Lanka.

Frelsinu fegnir. Tamílar streyma út úr kyrrsetningarbúðum á Sri Lanka. AFP

Þúsundir tamílskra borgara streymdu út úr kyrrsetningarbúðum stjórnvalda á norðurhluta Sri Lanka eftir að stjórnvöld opnuðu hlið þeirra. Búðirnar, sem hafa geymt tamílska borgara síðan stjórnin bar sigurorð af Tamíl-tígrunum í maí, hafa verið mjög umdeildar og fordæmdar af alþjóðasamfélaginu.

Upphaflega var um 300.000 Tamílum haldið í kyrrsetningarbúðum og í gær fengu síðustu 130.000 Tamílarnir frelsi. Reyndar er gert ráð fyrir að fjöldi Tamílanna muni halda til í búðunum enn um sinn þar sem heimaþorp þeirra hafa verið lögð í rúst eða vegna þess að enn er að finna jarðsprengjur í grennd við þorpin.

Ríkisstjóri Norður-héraðsins á Sri Lanka, G. A. Chandrasiri, sagði í viðtali við Times að búið væri að breyta öllum kyrrsetningarbúðum í opnar búðir og öllum væri frjálst að koma og fara að vild og yrði veittur nægur tími til að ákveða hvenær hentugast yrði að snúa heim.

„Þau geta farið til þorpa sinna, heimsótt ættingja og komið aftur í búðirnar ef þau kjósa,“ sagði Chandrasiri, og bætti við að fólki væri frjálst að dvelja í búðunum þar til það hefði annan stað að búa á.
Stjórnvöld á Sri Lanka hafa verið undir vaxandi þrýstingi af hálfu alþjóðasamfélagsins um að opna búðirnar, en þær hafa verið eitt helsta þrætuefnið síðan ríkisstjórn landsins batt enda á 26 ára borgarastríð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.