ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Stöð 2 að slátra RÚV - SkjárEinn fær útreið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:29 › 3. desember 2009
Ísland í dag og fréttir Stöðvar 2 hafa betur í baráttunni við fréttir RÚV og Kastljósið á þriðjudaginn var.

Ísland í dag og fréttir Stöðvar 2 hafa betur í baráttunni við fréttir RÚV og Kastljósið á þriðjudaginn var.

Ísland í dag og fréttir Stöðvar 2 eru að fá talsvert betra áhorf en fréttir RÚV og Kastljósið samkvæmt áhorfsmælingu Capacent í aldurshópnum 12-80 ára fyrir þriðjudaginn síðastliðinn. Tæpum þrettán prósentum munar á áhorfi slands í dag og Kastljóssins. 5,4 prósentum munar á fréttatímum Stöðvar 2 og RÚV.

Samkvæmt áhorfstölum sjónvarpsmiðlanna á þriðjudagin síðstliðinn var Ísland í dag sá dagskrárliður sem mest áhorf fékk af öllum. 29,5 prósent í aldurshópnum 12-80 ára. Helsti keppinautur þáttarins hjá RÚV, Kastljósið, fékk hins vegar ekki nema 17,6 prósenta áhorf á sama tíma.

Fréttir Stöðvar 2 hafa einnig vinninginn yfir báðum fréttatímum Ríkissjónvarpsins með 25,2 prósenta áhorf. Sjöfréttir RÚV mælast með 19,8 prósent áhorf en tíufréttirnar 18,6.

Aðeins veðurfréttir RÚV bjarga andliti Ríkissjónvarpsins og næla í annað sæti mælingarinnar með 28,7 prósenta áhorf.

Fréttatími Morgunblaðsins á SkjáEinum fær slæma útreið
Fréttatími Morgunblaðsins á SkjáEinum virðist fara fram hjá flestum eftir að stöðin varð áskriftarstöð samkvæmt áhorfsmælingu þriðjudagsins 1. desember. Fréttatíminn, og endursýning hans klukkutíma síðar, sitja í 53. og 54. Sæti áhorfsmælingalistans af 69 dagskrárliðum með aðeins 1 prósents áhorf hvor.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.