ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Setið um Ásdísi Rán í Búlgaríu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:37 › 3. desember 2009
Ásdís Rán á æsta aðdáendur ef marka má búlgarska vefsíðu.

Ásdís Rán á æsta aðdáendur ef marka má búlgarska vefsíðu. Mynd; Vera Páls

  • Ásdís og Garðar, vinsæl í Búlgaríu.

    Ásdís og Garðar, vinsæl í Búlgaríu.Mynd; Vera Páls

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sem flutti til Búlgaríu í fyrra með eiginmanni sínum, knattspyrnumanninum Garðari Gunnlaugssyni, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu fyrir stuttu samkvæmt búlgörsku vefsíðunni lifestyle.bg.

Kvöld eitt þegar Ásdís kom út úr lúxusíbúð sinni í hverfinu Borovo og ætlaði að stíga inn í bifreið sína kom mjög æstur ungur maður upp að henni og endurtók nafn hennar í sífellu. Á vefsíðunni kemur fram að Ásdís hafi haldið að maðurinn ætlaði að ráðast á sig en seinna kom í ljós að maðurinn var aðeins mjög dyggur aðdáandi Ásdísar og Garðars. Hann ætlaði sér ekki að vinna neinum mein, hvað þá fallegustu knattspyrnueiginkonu í landinu eins og lifestyle.bg orðar það, en Ásdísi á að hafa brugðið mjög við atvikið.

Vitni að atvikinu segja við lifestyle.bg að maðurinn hafi aðeins viljað sjá Ásdísi í návígi.

Ásdís hefur gert garðinn frægan í Búlgaríu og setið fyrir fyrir fjölmörg dagblöð og tímarit. Þá er hún einnig ein af þeim sem fylgst er með í sjónvarpsþættinum Footballer's Wives þar sem fjallað er um líf eiginkvenna knattspyrnukappa í landinu. Óvíst er hvort Ásdís haldi sig í Búlgaríu þar sem hennar heittelskaði skrifaði nýlega undir samning við Val á Íslandi. Þau hjónin eru nú stödd á Íslandi og hefur Ásdís nýtt tímann vel, setið fyrir og leikið í auglýsingum. Hún hefur slegið í gegn sem talan 21 í Lottó auglýsingunum sem nýlega voru teknar til sýningar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.