ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Sér eftir að hafa komið Tiger og eiginkonu hans saman

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:47 › 3. desember 2009
Tiger Woods á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.

Tiger Woods á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.

Sænski kylfingurinn Jesper Parnevik segist sjá verulega eftir því að hafa kynnt Tiger Woods fyrir Elin Nordgren, sem nú er eiginkona hans. Nordgren var barnapía Parneviks þegar Tiger hitti hana fyrst.

Málefni Tiger Woods hafa verið fyrirferðamikil í fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga. Hann er grunaður um að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni með allt að þremur konum. Í gær sendi hann svo frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist hafa brugðist fjölskyldu sinni án þess að fara nánar út í hvað hann átti við.

Parnevik sagði á Golf Channel að eiginkona Tiger eigi inni afsökunarbeiðni. „Ég er sérstaklega miður mín yfir þessu – ég finn mikið til með Elin – þar sem ég og eiginkona mín vorum þess valdandi að hann hitti hana og þau byrjuðu saman. Við héldum að hann væri betri náungi en hann er. Ég þarf líklega að biðja hana afsökunar á þessu,“ sagði hann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.