Viðræður standa nú yfir milli skilanefndar Glitnis og Salt Investments, félags Róberts Wessman, vegna tæplega 20 milljarða króna skuld félagsins.
Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Eins og frægt er orðið keypti Róbert tvisvar hlut í Glitni, fyrra skiptið átti sér stað árið 2007 en þau síðari nokkrum dögum fyrir þjóðnýtingu Glitnis árið 2008. Kaupin voru fjármögnuð af bankanum sjálfum og fóru í gegnum félagið Salt Financials, sem er dótturfélag Salt Investments. Skuld þess félags við bankann nemur rúmum 16,6 milljörðum króna en Salt Investments ábyrgðist kaupin og skuldar Glitni að auki 3 milljarða króna að því er segir í frétt Stöðvar 2.
Þá segir að viðræður standi nú yfir við skilanefnd Glitnis um uppgreiðslu á þessum tæpum 20 milljörðum króna. Haft er eftir Árna Harðarssyni, forstjóra Salt Investments, að nokkrar leiðir kæmu til greina en ljóst væri að eign félagsins í Actavis yrði notuð til að greiða skuldina.
Engar viðræður væru um afskrift á skuldum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna