ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Ríkasti glæpamaður Bretlands í 13 ára fangelsi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:31 › 3. desember 2009
Curtis Warren verður bak við lás og slá næstu þrettán árin.

Curtis Warren verður bak við lás og slá næstu þrettán árin.

Eiturlyfjabaróninn Curtis Warren, sem talinn er vera einn auðugasti glæpamaður Bretlands, hefur verið dæmdur í þrettán ára fangelsi.

Hinn 46 ára Warren var, ásamt fimm meðlimum glæpagengis síns, fundinn sekur í október síðastliðnum fyrir ráðabrugg sitt um að smygla fíkniefnum að andvirði milljón punda.

Warren varð eftirsóttasti glæpamaður Interpol eftir að hann birtist eitt sinn á lista Sunday Times yfir ríkasta fólk Bretlands.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.