Leikstjóranum og kvikmyndagerðamanninum Roman Polanski hefur verið sleppt úr fangelsi í Sviss og hann færður í annað fangelsi af öryggisástæðum.
Fram kemur í frétt Sky-fréttastofunnar að Polanski hafi verið færður úr fangelsinu í Zürich í annað fangelsi sem ekki fæst upp gefið hvar er. Hann á að hefja afplánun í stofufangesli í svissnesku Ölpunum á næstunni.
Talsmaður dómsmálaráðuneytisins í Sviss, Folco Galli, segir þetta gert af öryggisástæðum og til að vernda leikstjórann.
Hann verður færður í stofufangelsi í lúxusalpakofa sínum í Gstaad á föstudaginn.
Honum verður meinað að yfirgefa villuna á meðan svissnesk yfirvöld ákveða hvort þau framselji hann til Bandaríkjanna þar sem hann er erftirlýstur fyrir að hafa samræði við 13 ára stúlku árið 1977.
Hann var handtekinn í Sviss í september þar sem hann sótti kvikmyndahátíð og átti að taka á móti heiðursverðlaunum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung