ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Löggan stuðaði ódælan 10 ára dreng

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:20 › 3. desember 2009
Taser-byssa. Umdeilt valdbeitingarvopn.

Taser-byssa. Umdeilt valdbeitingarvopn.

Lögreglumenn í Pueblo í Colorado beittu rafbyssu, einnig þekktar sem Taser-byssur, á tíu ára gamlan dreng sem að mati lögreglumanna var gjörsamlega stjórnlaus. Drengurinn var að auki handtekinn í kjölfarið.

Lögreglumenn voru kallaðir að fósturheimili drengsins á miðvikudaginn þar sem hann gekk að sögn lögreglustjórans berserksgang innandyra. Stjórinn, Jeff Teschner, segir lögreglumennina hafa haft fullt tilefni til að beita Taser-byssum sínum. Drengurinn hafi ógnað laganna vörðum með röri og priki auk þess hafi hann grýtt viðarbút í átt að þeim.

Hann var handtekinn eftir að hafa verið yfirbugaður með Taser-byssunni.

Í síðasta mánuði var lögreglumanni í smábæ í Arkansas rekinn fyrir að nota Taser-byssu sína á tíu ára stelpu. En það var ekki notkunin á byssunni sem þótti brjóta í bága við reglur embættisins, heldur gleymdi löggan að kveikja á sérstakri myndavél á byssunni þegar hann notaði hana. Það var brottrekstrarsök.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.