ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Kirkju Tiger Woods lokað

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:50 › 3. desember 2009
Tiger Woods.

Tiger Woods.

Málefni Tiger Woods hafa verið fyrirferðamikil í fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga. Hann er grunaður um að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni með allt að þremur konum. Nú hefur einn heitasti stuðningsmaður hans ákveðið að loka vefsíðunni tigerwoodisgod.com.

Útvarpsmaðurinn John Ziegler stofnaði vefsíðuna árið 1996. Heimasíðan sem predikar nú „The damantion of Tiger Woods" var stofnuð til að fagna hinum sanna Messías sem Tiger átti að vera. Ziegler hefur nú gefið það út að vefsíðunni verði lokað vegna persónulegra synda Tiger Woods. Kirkjan hefur haft sinn eigin biðjanda og tíu boðorð Tiger Woods.

„Tiger á það klárlega ekki skilið lengur að á hann sé litið sem átrúnaðargoð. Hann hefur glatað tækifærinu til að vera einstök fyrirmynd fólks í Bandaríkjunum og um allan heim,“ segir Ziegler.

„Þótt ég sé viss um að Tiger muni eiga endurkomu eftir þennan sorglega atburð og eigi eftir að upplifa frábær augnablik í framtíðinni er ég persónulega búinn að fá nóg af honum,“ bætir Ziegler við.

Þetta virðist þó ekki samrýmast öllum af hinum tíu boðorðum um Tiger Woods. „Þú skalt ekki veita göllum Tiger Woods neina eftirtekt“.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.