Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Íbúar Kópaskers hafa verið án útvarps- og sjónvarspssendinga Ríkisútvarpsins frá því í gær. Útvarpssendingar Rásar 1 og 2 urðu slitróttar strax í gærmorgun en í dag hefur ekkert útvarps náðst. Þá voru miklar truflanir á útsendingum Ríkissjónvarpsins í gær; bæði á hljóð og mynd. Sjónvarpið hefur ekkert náðst í dag.
DV hafði samband við Ríkisútvarpið sem kannaðist ekki við málið og vísaði á Mílu ehf, sem rekur fjarskiptanet fyrir landið allt. Þar komu menn einnig af fjöllum en vísuðu á Ríkisútvarpið. Fyrirtækið væri einungis verktaki fyrir RÚV og tilkynningar og beiðnir um lagfæringu kæmu þaðan.
DV hefur þó rætt við íbúa sem segjast hafa tilkynnt um bilunina, bæði í dag og í gærkvöldi, ýmist með tölvupóstum eða símtölum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna