Í dag á alþjóðadegi fatlaðra veitti Öryrkjabandalag Íslands Hvatningarverðlaun ÖBÍ í þriðja sinn. Þau eru veitt til þeirra sem stuðlað hafa að einu samfélagi fyrir alla. Veitt voru þrenn verðlaun: til einstaklings, fyrirtækis og stofnunar, sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu.
Dómnefnd komst að eftirfarandi niðurstöðu:
Í flokki einstaklinga, Edda Heiðrún Backman, fyrir mikinn styrk, kjark og áræðni í að bæta aðstöðu sjúkra og fatlaðra, m.a. með söfnunarátakinu „Á rás fyrir Grensás“.
Í flokki fyrirtækja, SÍBS – Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, fyrir fyrirmyndaraðgengi við SÍBS-húsið, Síðumúla 6.
Í flokki stofnana, Öskjuhlíðarskóli, fyrir að gera nemendur hæfa til þátttöku í samfélaginu á sem flestum sviðum eftir því sem geta þeirra leyfir.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en hann er verndari verðlaunanna.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Salnum í Kópavogi að viðstöddu fjölmenni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli