ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Hermann Hreiðars og félagar án launa í nóvember

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:26 › 3. desember 2009
Hermann Hreiðarsson og félagar án launa í nóvember. Tómt tjón á eigendum liðsins.

Hermann Hreiðarsson og félagar án launa í nóvember. Tómt tjón á eigendum liðsins.

Knattspyrnufélagið Portsmouth, sem íslenski landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson leikur með, staðfesti í dag við Sky Sports að meirihluti leikmanna félagsins hefði ekki fengið greidd laun í nóvember.

Portsmouth á í miklum vandræðum um þessar mundir og situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Nýjir eigendur eru að koma að félaginu og nú virðist það hafa haft áhrif á launagreiðslur félagsins.

Samkvæmt frétt Sky Sports er talið að trúarhátíð í Sádi Arabíu hafi tafið fyrir greiðslunum.

Samskonar töf átti sér stað í lok september þegar Portsmouth viðurkenndi að leikmenn þeirra hefðu ekki fengið greidd laun og þá var því kennt um að tafir hefðu orðið á fjármunum í kjölfar yfirtöku Sulaiman Al-Fahim á félaginu.

Félagið greiddi að lokum launin sem það skuldaði leikmönnum en Al-Fahim var samt í tómu tjóni með fjármögnun sína og svo fór að Ali Al-Faraj keypti meirihlutann í leiðinu í byrjun október.

„Portsmouth FC getur staðfest að meirihluti leikmanna í liðinu hafa ekki fengið greidd laun sín fyrir nóvember,“ segir í tilkynningu liðsins.

Þá segir að hluti launanna verði greiddur á morgun og nýjir eigendur muni vinna hörðum höndum að því að gera upp skuldir við leikmenn á næstu dögum í kjölfarið.

Framkvæmdastjóri bresku leikmannasamtakanna Gordon Taylor segir að svona nokkuð sé þekkt í neðri deildum ensku knattspyrnunnar en sú staðreynd að þetta gerist í efstu deild hljóti að skaða ímynd ensku deildarinnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.