ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Femínistar vara við ábyrgum feðrum

16:44 › 3. desember 2009
Guðný Gústafsdóttir formaður Femínistafélags Íslands.

Guðný Gústafsdóttir formaður Femínistafélags Íslands.

Femínistafélag Íslands ályktar gegn boðskap Félags um foreldrajafnrétti, áður Ábyrgir feður, sem felur í sér þá kenningu (PAS-kenningin) að forsjárforeldri, oftast mæður, ali börn sín á hatri gegn barnsföður. Femínistar segja þrýsting frá ábyrgum feðrum, þess efnis að beita kenningunni í forsjár- og umgengnismálum hérlendis, farinn að skila sér í samfélaginu og vara við þeirri þróun.

Vegna umræðu undanfarið um forræðismál hélt Femínistafélagið málfund í vikunni. Þar kom fram í máli sérfræðinga, þeirra Elísabetar Gísladóttur lögfræðings og Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings, að annars vegar sé lítið tillit tekið til þess í forsjármálum að barn hafi verið beitt ofbeldi á heimilinu og hins vegar séu afleiðingar PAS-kenningarinnar skelfilegar fyrir börn. Femínistar segja fátt sem réttmæti kenningarinnar og benda á að bandarískir dómstólar hafi alfarið vísar henni frá dómi.

Í yfirlýsingu félagsins segir: „Femínistafélag Íslands skorar á barnaverndaryfirvöld og stjórnvöld í landinu að læra af biturri reynslu Bandaríkjamanna. Félagið krefst endurskoðunar á verklagsreglum og löggjöf í umgengnis- og forsjármálum. Ofbeldi er alvarlegt mál og skal aldrei þaggað - börn verða að njóta vafans ef grunur um slíkt er til staðar. Hagur og velferð barna skal ávallt vera í fyrirrúmi, þeirra rödd og mannréttindi ber að virða.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.