„Ef eitthvað kemur fyrir mann þýðir ekkert að vera þunglyndur alla ævi,“ segir Íva Marín Adrichem, ellefu ára alblind stúlka. „Það er mikilvægt að vera jákvæður – en samt er ég engin Pollýanna,“ segir hún.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, afhenti Ívu fyrsta bláliljuhálsmenið sem selt verður í desember í verslunum Leonard til styrktar blindum börnum.
Íva lætur blinduna ekki hamla sér mikið í athöfnum daglegs lífs. Hún gengur í hefðbundinn grunnskóla í Garðabæ, tekur þátt í fimleikum hjá Gerplu, er í píanótímum og komst í 40 manna úrslit í Söngvaseið en upphaflega voru þátttakendurnir 4000. Ívu langar að gera ýmislegt fleira sem jafnaldrar hennar geta mgert og er nú á námskeiði í söng og leiklist í Borgarleikhúsinu. Hún segist hafa mikinn áhuga á að fara í Yale eða Harvard eftir stúdentspróf eða í leiklistarskóla og verða söngleikjastjarna.
Fjölskyldan átti heima í Kópavogi þegar Íva fæddist en fluttist til Hollands þegar hún var fjögurra ára. Þau komu aftur til Íslands fyrir tveimur árum. Fyrst á eftir var þjónustan ekki nógu góð en hún hefur
gjörbreyst eftir að þjónustumiðstöð fyrir blinda og sjónskerta tók til starfa.
Íva og móðir hennar, Inga Dóra Guðmundsdóttir, eru sammála um að mikilvægt sé fyrir blind
börn að vera í skóla án aðgreiningar, að þau séu tekin inn í samfélagið eins og venjulegt fólk. Aðspurð segir Íva að sér gangi mjög vel í skóla. Námsefnið er í boði ýmist á blindraletri eða á tölvuformi. Tölvan er til ýmissa hluta gagnleg fyrir blind börn. Íva segist til dæmis vera á Face book.
„Blind og sjónskert börn geta tekið þátt í tómstundastarfi með öðrum börnum, en þurfa oftast aðstoð við það,“ segir Inga Dóra. „Það er mikilvægt að þau fái tækifæri til að taka þátt til að koma í veg fyrir að þau einangrist.“ Íva viðurkennir að þetta sé ekki alltaf auðvelt. „Maður þarf að vera þrautseigur,“ segir hún. Eitt af því sem sjóðurinn Blind börn á Íslandi er að undirbúa er skíðanámskeið.
Þetta er annað árið sem Leonard lætur hanna skartgrip og selur til styrktar góðu málefni. Bláliljuna hönnuðu Eggert Pétursson listmálari og Sif Jakobs gullsmiður. Fyrir síðustu jól hönnuðu þau Hjartarfa sem seldur var til styrktar hjartveikum börnum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna