ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Dómur þyngdur yfir 61 árs barnaníðingi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:42 › 3. desember 2009
Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms yfir rúmlega sextugum karlmanni sem braut gegn fjórtán ára greindarskertri stúlku.

Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms yfir rúmlega sextugum karlmanni sem braut gegn fjórtán ára greindarskertri stúlku.

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir 61 árs karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára gamalli greindarskertri stúlku. Hæstiréttur dæmdi manninn í 20 mánaða fangelsi fyrir að láta stúlkuna hafa við sig munnmök.

Maðurinn kynntist stúlkunni, sem þá var fjórtán ára gömul, á netinu og í spjalli við hana sagðist hann vera rúmlega tvítugur, en var hann þá 61 árs.

Fram kemur í dómi Hæstaréttar að maðurinn hafi farið með stúlkuna heim til sín þar sem hann framdi brotið gegn henni „þó honum hlyti að vera fulljóst að auk ungs aldurs væri hún einni greindarskert,“ segir í dómnum.

Var maðurinn ekki talinn eiga sér neinar málsbætur og dæmdur í 20 mánaða fangelsi og gert að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.