Hæstiréttur staðfesti í dag dóm yfir þremur mönnum sem fengu þunga dóma fyrir aðild sína að Papeyjarsmyglmálinu svokallaða í apríl síðastliðnum.
Hollendingurinn Peter Rabe, sem dæmdur var í tíu ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 6. ágúst síðastliðinn, krafðist þess fyrir Hæstarétti að málinu yrði vísað frá. Rúnar Þór Róbertsson, sem dæmdur var í tíu ára fangelsi fyrir aðild sína, og Árni Hrafn Ásbjörnsson, sem fékk níu ára dóm, kröfðust þess að vera sýknaðir.
Héraðsdómur tók það ekki í mál og stendur dómur héraðsdóm yfir þeim. Hæstiréttur úrskurðaði hins vegar að draga bæri gæsluvarðhaldsvist þremenningana frá refsingu þeirra en þeir sátu í gæsluvarðhaldi óslitið frá 20. apríl.
Sexmenningarnir í Papeyjarsmyglinu svokallaða sem grunaðir voru um að hafa smyglað 109 kílóum af kannabisefnum, amfetamíni og e-töflum til landsins með skútunni Sirtaki í apríl voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir. Þyngstu dómana fengu Hollendingurinn Peter Rabe og Rúnar Þór Róbertsson eða 10 ára fangelsisdóm.
Götuvirði efnanna sem mennirnir voru dæmdir fyrir að reyna að smygla til landsins er um hálfur milljarður króna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna