ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

„Álfur“ hótaði að sprengja upp sveinka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:32 › 3. desember 2009
Jólasveinninn hló ekki dátt eftir að sprengjuhótun álfsins.

Jólasveinninn hló ekki dátt eftir að sprengjuhótun álfsins.

Maður klæddur í álfabúning var handtekinn í verslunarmiðstöð í Morrow í Georgíuríki Bandaríkjanna í dag eftir að hann tjáði jólasveini verslunarmiðstöðvarinnar að hann væri vopnaður dínamíti.

Southlake verslunarmiðstöðin var rýmd en lögreglan fann engin sprengiefni.

Lögreglan í Morrow handtók hinn 45 ára William C. Caldwell vegna málsins en tekið var sérstaklega fram að hann var ekki í starfsliði verslunarmiðstöðvarinnar sem ber ábyrgð á jólagleðinni þar innandyra.

Að sögn lögreglu komst Caldwell fremst í biðröð fulla af börnum í Southlake og tjáði sveinka það að hann væri með dínamít í bakpokanum sínum. Jólasveinninn brást skjótt við og tilkynnti öryggisgæslu verslunarmiðstöðvarinnar um málið og var Caldwell handtekinn.

Fjölmargar ákærar bíða herskáa „álfsins“, meðal annars að hóta að fremja hryðjuverk.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.