Tiger Woods og Elin Nordegren þegar allt lék í lyndi. Hún mun hafa látið vaða í smettið á honum með golfkylfu kvöldið alræmda.
Einn virtasti íþróttablaðamaður Bandaríkjanna, Furman Bisher, kveðst hafa heimildir fyrir því að kylfingurinn kvensami Tiger Woods hafi þurft að gangast undir lýtaaðgerð vegna áverkanna sem hann hlaut eftir golfkylfuárás eiginkonu sinnar Elin Nordegren kvöldið sem hann klessukeyrði jeppann sinn.
Bisher skrifar um málið á sína eigin bloggsíðu segir að kylfingurinn hafi verið sleginn í andlitið með níujárni af Nordegren. Við það hafi Woods kinnbeinsbrotnað og minnstu mátti víst muna að tvær framtennur væru slegnar úr honum.
Bisher segir áverkana vera helstu ástæðuna fyrir því að Woods hafi ekki sést opinberlega síðan atvikið átti sér stað fyrir um fimm vikum síðan. Í kjölfarið opnuðust allar flóðgáttir og upp komst um meint framhjáhöld kappans sem alkunna er.
Hvorki talsmenn Woods né Nordegren hafa staðfest frásögn Bisher og þá hefur lögreglan heldur ekki viljað tjá sig um sannleiksgildi hennar. En Bisher þykir einn virtasti íþróttablaðamaður Bandaríkjanna og þá sérstaklega hvað golfíþróttina varðar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung