ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Hrútur braust inn hjá prestinum á Grundarfirði

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:43 › 28. desember 2009

Hrútur gerði sér lítið fyrir og braust inn á heimili Aðalsteins Þorvaldssonar sóknarprests á Grundarfirði í kvöld. Verið var að flytja hrútinn á milli bæja er hann slapp. Hann stangaði rúðu á heimili Aðalsteins og komst þannig inn. Eigandi hans náði honum skömmu síðar og varð hrútnum ekki meint af. Ýmsar skemmtilegar getgátur hafa sprottið upp um ástæðu þess að hrúturinn valdi hús sóknarprestsins til að leita skjóls.

Hrúturinn hefur verið notaður til kynbóta og var hann nýkominn af sveitabæ hvar hann hafði sinnt skyldum sínum. „Ég vil meina að hann hafi verið plagaður af hórdómnum í sér og viljað létta af samviskunni,“ segir Aðalsteinn léttur í bragði. „Mér þykir þó líklegra að hann hafi séð spegilmynd sína í rúðunni og ákveðið að ráðast á hana,“ segir Aðalsteinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.