ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Tarsan leikur í 40 ár fyrir jólin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:48 › 24. desember 2009
Jóhannes Atlason er búinn að standa vaktina í 40 ár og stýra Tarsan-leiknum.

Jóhannes Atlason er búinn að standa vaktina í 40 ár og stýra Tarsan-leiknum. Sigtryggur Ari

Jóhannes Atlason hefur kennt íþróttir í Breiðholtsskóla í 40 ár. Í síðasta íþróttatímanum fyrir jólafrí fara krakkarnir alltaf í sérstakan Tarsan-leik í íþróttahúsinu sem hefur haldist nákvæmlega eins öll þessi ár. Þetta er síðasta árið sem Jóhannes stjórnar Tarsan leiknum.

Jóhannes Atlason, íþróttakennari í Breiðholtsskóla, fyrrverandi leikmaður og síðar þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu, stýrði sínum síðasta Tarsan-leik í skólanum fyrir jólin. Áratuga löng hefð er fyrir því í Breiðholtsskóla að í síðasta leikfimitímanum fyrir jól, fari strákarnir í sérstakan Tarsan-leik. Nú fyrir jólin stýrði Jóhannes leiknum fertugasta árið í röð, en hann hættir að kenna eftir þetta skólaár. Fjörutíu árgangar stráka sem eru aldir upp í Neðra-Breiðholti hafa farið í Tarsan-leikinn í síðasta tímanum fyrir jól hjá Jóhannesi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.