ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Susan Sarandon er skilin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:24 › 24. desember 2009
Leikaraparið Susan Sarandon og Tim Robbins eru nú formlega skilinn.

Leikaraparið Susan Sarandon og Tim Robbins eru nú formlega skilinn.

Hin 63 ára gamla leikkona Susan Sarandon er nú formlega orðinn skilin við leikarann Tim Robbins. Þau voru gift í 23 ár. Parið sleit sambandinu síðasta sumar en nú hefur formlega verið gengið frá skilnaði þeirra.

Þau kynntust við upptökur á bíómyndinni Bull Durham. Þau eiga tvo syni. Þá Jack Henry sem er 20 ára og Miles Guthrie 17 ára.

Susan Sarandon hefur verið dugleg við að tjá sig um að eldri konur hætti að vera kynæsandi og aðlaðandi með aldrinum.

„Við fáum alltaf að vita það að með aldrinum verðum við að hætta leikferli okkar. Svona hefur þetta ekki verið hjá mér. Maður verður að vera jákvæður og halda áfram að vera aðlaðandi þó aldurinn færist yfir mann, segir Sarandon.

„Ég er að sjálfsögðu ekki lengur með fullkominn líkama. Það er stríð sem ekki vinnst. En af hverju að kasta handklæðinu í hringinn. Það er hellingur af konum sem enn halda kynþokkanum þrátt fyrir aldur sinn,“ segir hún.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.