ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Skólagjöld þrefaldast

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:35 › 24. desember 2009
Skólagjöld í kvöldsskóla framhaldsskólanna þrefaldast samkvæmt nýsamþykktum lögum.

Skólagjöld í kvöldsskóla framhaldsskólanna þrefaldast samkvæmt nýsamþykktum lögum.

Samkvæmt breytingum sem gerðar voru á lögum á Alþingi sem samþykkt voru fyrir jól munu skólagjöld þeirra sem stunda nám í framhaldsskólum á kvöldin þrefaldast. Þetta kom fram í fréttum Bylgjunnar í hádeginu.

Samkvæmt nýsamþykktum lögum mun kostnaður við hverja einingu í námi fara úr 2500 krónum í 7500 krónur. Þeir sem stunda 35 eininga nám yfir skólaárið munu því þurfa að borga um 263 þúsund krónur í stað 88 þúsund króna áður. Það er þreföld hækkun.

Samkvæmt áætlun frá fjármálaráðuneytinu munu 225 nemendur stunda 35 eininga nám í kvöldskóla á næsta ári. Því þýðir þessi hækkun skólagjalda um 40 milljónir króna í auknar tekjur fyrir ríkissjóð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.