ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Símakostnaður stórhækkar ef gagnaver klikkar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:20 › 24. desember 2009
Við undirritun samnings í febrúar 2008.

Við undirritun samnings í febrúar 2008.

Ef ekkert verður af netþjónabúi Verne Holdings á Vallarheiði gæti það orðið til þess að verð á síma og netþjónustu til neytenda gæti stórhækkað hjá öllum símafyrirtækjum. „Það mun hafa mjög slæmar afleiðingar fyrir þjóðina í heild ef netþjónabúið kemur ekki. Ef þetta klikkar þá erum við í vondum málum,“ segir Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Farice í samtali við DV. Fyritækið Farice rekur sæstrengina Danice og Farice-1.

5 milljarða ríkisábyrgð
Íslenska ríkið veitti heimild til fimm milljarða króna ríkisábyrgðar á Danice strengnum síðasta vor. Í kjölfar þess fór Farice í fimm milljarða króna skuldabréfaútboð og því er ríkisábyrgð á þeim skuldabréfum. Að sögn Gunnars hyggst Farice síðan auka hlutafé sitt um 25 milljónir evra eða sem nemur 4,6 milljörðum íslenskra króna á næstu vikum. Vegna þessa hefur íslenska ríkið óskað eftir aukaheimild í fjárlögum til að taka þátt í hlutafjárútboði Farice. Mun ríkið leggja fram 6,25 miljónir evra eða sem nemur 1150 miiljónum króna sem er í samræmi við eignahlut ríkisins í Farice.

Fyrrum Landsbankamenn endurskipuleggja Farice
Fyritækið Arctica Finance vinnur nú að fjárhagslegri endurskipulagningu Farice. Flestir starfsmenn fyrirtækisins störfuðu áður á fyrirtækjasviði Landsbankans. Því skýtur nokkuð skökku við að fyrrum starfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar séu að endurskipuleggja fyrirtæki sem á allt sitt undir því að fyrirtækið Verne Holding sem Björgólfur á um helmingshlut í fái heimild frá Alþingi til að starfrækja netþjónabú á Suðurnesjum.

Guðmundur segir ekkert athugavert við þetta. Fjárhagsleg endurskipulagning Farice hafi farið í útboð. „Þannig að það sé alveg á hreinu þá óskaði Farice eftir tiboðum frá einum átta fyritækjum og þetta var niðurstaðan,“ segir Guðmundur. Fyrirtækið Arctica Finance átti þar lægsta tilboðið sem síðan var tekið. Arctica Finance hóf fjárhagslega endurskipulagningu Farice fyrir um mánuði síðan og segist Guðmundur gera ráð fyrir að henni verið lokið innan tveggja mánaða.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.