Vilhjámur Svan, umsjónarmaður Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni, gerir ráð fyrir því að gefa yfir fimm hundruð máltíðir yfir jólahátíðina. Hann hefur opið alla daga hátíðarinnar þar sem boðið verður upp á hádegisverð.
Á aðfangadag verður bayonneskinka á boðstólum, hamborgarhryggur á jóladag og hangikjöt á annan í jólum. Allur mat fæst gefins frá fjölda fyrirtækja og hið sama á við um drykkjarföng. Vilhjálmur segir enga tilfinningu betri en þá að gefa fátækum mat að borða. „Við verðum með mat í hádeginu alla dagana og auðvitað skötu á Þorláksmessu. Ég hef fundið mjög mikið þakklæti út af jólamatnum yfir hátíðarnar og Kaffistofan hefur fengið mikinn meðbyr,“ segir Vilhjálmur.
„Ég hef sjálfur verið að vinna yfir öll jólin og svo hef ég fengið góða sjálfboðaliða með mér. Þeim er ég mjög þakklátur. Það er ekkert betra en að geta gefið fátækum og svöngum að borða. Það er síðan enn þá betra að geta gefið matinn yfir jólinn. Það er einfaldlega frábært.“
Fjöldi Íslendinga ver jólunum ár hvert fjarri heimili sínu til þess að aðstoða þá sem minna mega sín. Oftar en ekki starfar þetta fólk í sjálfboðavinnu bæði hér heima og erlendis. Rætt er við nokkra slíka Íslendinga í jólablaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna