ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Safnað fyrir Mæðrastyrksnefnd

14:10 › 24. desember 2009
Hörkufólk. Dagmar Heiða Reynisdóttir, eigandi Fullfrísk, með Emblu Maríu Jónsdóttur í fanginu, Arnaldur Birgir Konráðsson, eigandi Boot Camp, Róbert Traustason, eigandi Boot Camp og Guðrún Lovísa Ólafsdóttir, eigandi Fullfrísk.

Hörkufólk. Dagmar Heiða Reynisdóttir, eigandi Fullfrísk, með Emblu Maríu Jónsdóttur í fanginu, Arnaldur Birgir Konráðsson, eigandi Boot Camp, Róbert Traustason, eigandi Boot Camp og Guðrún Lovísa Ólafsdóttir, eigandi Fullfrísk. Mynd Bragi Þór Jósefsson

„Það er alltaf gott að gefa af sér. Það er notalegt að koma og fá sér kaffi og kakó og pakka inn jólagjöfum. Meira að segja krökkunum fannst þetta spennandi. Fyrst voru krakkarnir frekar fúlir að fá ekki pakkana sjálfir því þetta voru veglegar gjafir,“ segir Guðrún Lovísa, annar eigandi Fullfrísk, fyrirtækis
sem sérhæfir sig í líkamsrækt fyrir barnshafandi konur og nýbakaðar mæður.

Fullfrísk og Boot Camp hafa haldið jólagleði saman í þrjú ár en Boot Camp hafa alltaf safnað gjöfum fyrir Mæðrastyrksnefnd og eytt hundruðum þúsunda í þær gjafir.

Í ár var ákveðið að fara aðeins lengra með þessa hugmynd og fékk Guðrún nokkrar mæður til að taka til í fataskápunum sínum og gefa notuð föt - enda kostar útigalli nánast hundrað þúsund kr. um þessar mundir. Guðrún fékk Fönn til að þvo fötin þannig að öll gömlu og notuðu fötin ilmuðu og litu út eins og ný. „Þetta heppnaðist vel, við vorum með hljómsveit og bakkelsi og jólasveinninn kíkti í heimsókn,“ segir Guðrún ánægð með útkomuna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.