Rússar eru stórhuga þessa dagana og hyggjast senda geimfar til mars á næstunni. Það óvenjulega er að í geimfarinu verður api í stað venjulegs geimfara og verður hann í slagtogi með hópi vélmenna, ef hugmyndir rússneskra geimvísindamanna ná fram að ganga.
Þessar hugmyndir Rússa eru ekki nýjar af nálinni því árið 1983 sendu þeir apa í geiminn. „Við höfum útbúið áætlun um að snúa aftur í geiminn,“ segir Zurab Mikvabia, forstöðumaður Experimental Pathology and Therapy í nágrannaríki Rússlands, Georgíu. Stofnunin útvegaði Rússum einmitt apa árið 1983.
Mikvabia segir að stofnunin eigi nú í viðræðum við rússnesku geimvísindastofnunina um að þjálfa apa upp í leiðangur til mars. Fyrst yrði hann sendur í hálfgerðan gervileiðangur, sem felur í sér að dvelja í 120 daga ofan í litlu hylki. Eru aðstæður þar sagður líkjast þeim sem eru í geimförum.
Rússar áætla að leiðangur til mars gæti tekið 520 daga, eða um eitt og hálft ár. Vilja þeir fyrst senda apa í geiminn til að kanna hvaða áhrif svo löng ferð hefur á dýrið. Ekki eru allir á eitt sáttir um hugmyndir Rússa og hafa dýraverndunarsamtök meðal annars gagnrýnt hugmyndirnar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung