Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra, verður í stóru hlutverki í Grensáskirkju á nýársdag. Þá er hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni og sér Ragna um predikunina. Hún lýsti því eitt sinn í viðtali í Morgunblaðinu að hún væri trúuð og teldi trúna mikilvæga fyrir landsmenn og endurspeglast það kannski í predikun hennar.
Annars eru fleiri landsþekktir einstaklingar í stórum hlutverkum í Grensáskirkju yfir hátíðarnar. Geir Jón Þórisson er maður ekki einhamur. Fyrir utan að standa upp úr hvar sem hann fer og sérstaklega við skyldustörf hefur hann vakið athygli fyrir að vera trúmaður mikill. Geir Jón er líka söngmaður og syngur einsöng við hátíðarguðsþjónustu þegar jólahátíðin gengur í garð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum