ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Jólin eru fagnaðarhátíð, líka þeim sem syrgja

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:00 › 24. desember 2009
Jón Aðalsteinn og Margrét Sigtryggsdóttir þekkja sorgina af eigin raun en þau misstu dóttur sína Sigrúnu. Hún lést eftir baráttu við íllvígt krabbamein frá eiginmanni og þremur ungum börnum.

Jón Aðalsteinn og Margrét Sigtryggsdóttir þekkja sorgina af eigin raun en þau misstu dóttur sína Sigrúnu. Hún lést eftir baráttu við íllvígt krabbamein frá eiginmanni og þremur ungum börnum.

Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, starfaði í 20 ár sem sendiráðsprestur í London þar sem hann hjálpaði veikum Íslendingum og aðstandendum þeirra. Jón segir starfið hafa verið erfitt en lærdómsríkt. Þau hjónin þekkja sorgina af eigin raun en þau misstu dóttur sína úr krabbameini árið 2004.

Hólabiskup skilur reiði landsmanna vegna efnahagshrunsins og hann segir grunnstoðir samfélagsins ekki mega falla í skuggann á bankastofnunum og fyrirtækjum.

Jón Aðalsteinn segir jólin álagstíma presta og að margir kollegar hans kvíði fyrir að standa frammi fyrir fólki um jólin sem viti ekki hvert það eigi að snúa sér í vandræðum sínum. Þrátt fyrir allt er hann bjartsýnn á nýja árið og telur að þjóðin komist út úr kreppunni fyrr og betur en á horfðist.

Rætt er við Jón Aðalstein í jólablaði DV sem komið er út


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.