ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Jólasveinar rændu sjoppu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:39 › 24. desember 2009
Myndin tengist ekki frétt og er ekki af ræningjunum þrem.

Myndin tengist ekki frétt og er ekki af ræningjunum þrem.

Þrír ræningjar sem voru klæddir í jólasveinabúninga rændu sjoppu í Árósum í Danmörku í gær. Þeir hótuðu starfsfólki og var einn ræningjanna með byssu og annar með hníf. Stálu þeir bæði sígarettum og og áfengi.

Lögreglan á Austurjótlandi leitar nú mannanna en ræningjarnir eru taldir vera á þrítugsaldri. Er talið að einn þeirra sé af sómölsku bergi brotinn. Ræningjarnir þrír flúðu af staðnum í rauðum bíl.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.