„Mörg okkar framkvæma fleiri góðverk í kringum jólin en í annan tíma og líklega til þess að hjartað slái á réttan hátt yfir hátíðarnar. Mesta góðverkið er samt að gera eitthvað fallegt fyrir aðra án þess að fólk viti hver gerði það og án þess að fá eitthvað fyrir,“ segir Helga Braga Jónsdóttir leikkona.
Helga hefur verið iðin við að taka þátt í alls kyns styrktarsöfnunum í gegnum árin, bæði sem kynnir og skemmtikraftur.
„Mér finnst alltaf jafn gefandi að gefa mína vinnu verðugu málefni og ég set alveg jafn miklar kröfur á mig þá og þegar ég fæ borgað,“ segir Helga og bætir við að það fylgi mikil gleði að geta hjálpað öðrum. „Ég hef séstaklega gaman af því að heimsækja leikhópinn Perluna og fæ alltaf jólakort frá þeim sem mér þykir afskaplega vænt um. Eins hef ég fengið frá þeim blóm, endalausa ást, þakklæti og knús og meira að segja ljóð sem hljómaði einhvern veginn svona:
Helga Braga er góð leikkona.
Það er bara svona.
Hún er góð,
en aldrei óð
ég sem um hana ljóð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli