ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Hilmar Veigar hugmyndasmiður gagnavers

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:05 › 24. desember 2009
David Fialkow, framkvæmdastjóri General Catalyst segir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP sé einn færasti forstjóri heims í dag.

David Fialkow, framkvæmdastjóri General Catalyst segir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP sé einn færasti forstjóri heims í dag.

David Fialkow, framkvæmdastjóri General Catalyst segir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri tölvuleikjaframleiðandans CCP hafi átt hugmyndina að gagnaveri Verne Holding á Vallarheiði í Reykjanesbæ.

Þegar hann er spurður af því hvers vegna General Catalyst hafi ákveðið að fjárfesta á Íslandi segir Fialkow að hér séu frumkvöðlar á heimsmælikvarða. Tæknistig sé mjög hátt á Íslandi og það fari vel saman með nýsköpun.

Fialkow telur að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, sé einn færasti forstjóri heims. Hann segir að Hilmar Veigar eigi hugmyndina að gagnaverinu á Reykjanesi. General Catalyst hafi síðan kynnst Novator í gegnum CCP þar sem bæði fyrirtækin eru hluthafar.

Fialkow segir að hann hafi komið að fjárfestingum á Íslandi síðustu fimm árin. Auk þessa að sitja í stjórn Verne Holding er hann stjórnarmaður í tölvuleikjaframleiðandanum CCP.

Fialkow segir að General Catalyst líti á fjárfestinguna í gagnaverinu sem langtímafjárfestingu en það samrýmist ekki fjárfestingastefnu fyrirtækisins. „Svo lengi sem fjárfestingin er að gefa af sér gott fjárflæði þá munum við halda í hana,“ segir Fialkow.

Hann segir að eiginfjárframlag fjárfesta í gagnaverinu verði um 100 milljónir dollara eða sem nemur 12,3 milljörðum íslenskra króna. Að sögn Fialkow gæti heildarfjárfesting í gagnavernu numið allt að 500 milljónum dollara eða sem nemur tæpum 65 milljöðrum íslenskra króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.