ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Heimilislausir mæta uppáklæddir

08:08 › 24. desember 2009
Anne Marie heldur utan um jólahátíð Hjálpræðishersins.

Anne Marie heldur utan um jólahátíð Hjálpræðishersins. Mynd Heiða Helgadóttir

Anne Marie Reinholdtsen heldur utan um jólahátíð Hjálpræðishersins. Þá er heimilislausum og fátækum boðið í glæsilegan kvöldverð á aðfangadagskvöld og hádegisverð á jóladag. Í ár verður boðið upp á lambalæri og hamborgarhrygg í bland við jólasöngva, jólagjafir og ómetanlega jólastemningu.

Ár hvert kemur fjöldi sjálfboðaliða sem hjálpar til við jólahald Hjálpræðishersins yfirleitt í kringum fjörutíu einstaklingar. Gestir á jólahátíðinni eru ríflega hundrað og fimmtíu talsins og skemmta sér konunglega.

Anne Marie segir það ómetanlegt að geta glatt aðra yfir jólin. „Við höfum fengið gefins mat frá fjölda fyrirtækja enda hefur alltaf verið fjölmennt hjá okkur. Jólastemningin hjá okkur er mjög góð og það er svo gaman að hitta gestina prúðbúna, í sínum bestu fötum, sem alla jafna eru illa til fara. Við finnum mikla gleði og gestirnir eru svo þakklátir, það er eitt af því besta við hátíðina því það er svo gaman að geta gefið af sér. Um það snúast einmitt jólin,“ segir Anne Marie.

„Það er alltaf hópur sjálfboðaliða sem hefur samband við okkur að fyrra bragði og það er alveg frábært. Síðan gefum við jólasælgæti og það fá allir jólapakka hjá okkur. Við reynum að hafa þetta eins jólalegt og heimilislegt og hægt er. Flestir gestirnir okkar upplifa barnið í sér á nýjan leik og það segir mér að við erum að gera eitthvað rétt með hátíðinni okkar.“

Fjöldi Íslendinga ver jólunum ár hvert fjarri heimili sínu til þess að aðstoða þá sem minna mega sín. Oftar en ekki starfar þetta fólk í sjálfboðavinnu bæði hér heima og erlendis. Rætt er við nokkra slíka Íslendinga í jólablaði DV.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.