„Ég var í Soroti í Úganda um síðustu jól að kenna leiklist og tónlist í barnaskóla og stjórna landbúnaðarverkefni í sveitunum. Ég komst í kynni við belgísk hjálparsamtök þegar ég var að vinna fyrir EFTA. Ég var samtals í níu mánuði í Afríku,“ segir Harpa Fönn Sigurjónsdótti, annar eigandi Framkvæmdafélags listamanna.
Harpa segir að hún muni fara aftur til Afríku - annað komi ekki til greina. „Þeir sem hafa dýft sér í Níl einu sinni eiga alltaf afturkvæmt. Ég tók áramótabaðið þar svo að ég á að fara aftur og stefni á það.“
Úgandabúar halda á jólin á jóladag en þrátt fyrir það segir Harpa að það hafi verið æðislegt að eyða jólunum í Úganda enda hélt hún séríslenskan aðfangadag - með önd. „Ég fór ferð til Kampala til að leita að hinni einu sönnu jólasteik. Við erum alltaf með önd í minni fjölskyldu og það var hægt að fá önd í Kampala. Nema hún kostaði jafnmikið og þriggja mánaða laun þarna úti. Ég ákvað samt að kaupa eina bringu. Það var ógeðslega gaman og ég eldaði mér önd á aðfangadag.“
Daginn eftir var henni svo boðið í mikla veislu. „Það er engin pakkamenning í Úganda, þetta snýst allt um að vera með rosalega góðan mat - sjö til átta rétta. Þetta er í raun eina skiptið á árinu sem þau borða á sig gat.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða
Snorri í Betel: „Ég met þetta þannig að Biblían sé að segja satt“