Kjör á íþróttamanni ársins fer fram þann fimmta janúar á næsta ári. Atkvæði hafa verið talin og er ljóst hvaða íþróttamenn hafa hlotið flest atkvæði frá meðlimum samtaka íþróttafréttamanna. Hér að neðan fylgir listinn yfir þá tíu bestu á árinu 2009, í stafrófsröð.
Björgvin Páll Gústavsson, handknattleiksmaður hjá Kadetten í Sviss.
Björgvin Páll samdi við besta lið Sviss á árinu, Kadetten, og hefur átt gífurlega góðu gengi að fagna. Liðið tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu um daginn en er efst í deildinni og komið áfram í 16 liða úrslit EHF-bikarsins. Gengi liðsins er ekki að litlu leyti Björgvini að þakka sem hefur leikið frábærlega. Þá hefur þessi vel gelaði markvörður úr Kópavogi fest sig í sessi sem aðalmarkvörður íslenska landsliðsins og stóð sig hreint frábærlega með því í undankeppni Evrópumótsins.
Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá AS Monaco í Frakklandi.
Eiður Smári var hluti af gífurlega sigursælu liði Barcelona í ár en þetta katalónska stórlið gerði sér lítið fyrir og vann þrennuna, það er að segja spænsku deildina, spænska bikarinn og meistaradeildina. Um leið varð Eiður fyrsti Íslendingurinn til þess að lyfta Meistaradeildartitlinum. Hann lék vissulega ekki mikið með liðinu en afrekaði að koma við sögu í ríflega þrjátíu leikjum og skora fjögur mörk. Hann er nú á mála hjá AS Monaco í Frakklandi þar sem gengið hefur ekki verið gott.
Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.
Guðjón Valur var í nýju hlutverki hjá stórliði Rhein-Neckar Löwen á síðasta tímabili, lék þar sem leikstjórnandi og skilaði frábæru verki. Hann var stoð og stytta í leik liðsins ásamt því að taka við fyrirliðabandi íslenska landsliðsins. Hjá landsliðinu dró hann vagninn eins og sönnum fyrirliða sæmir í gegnum erfiða undankeppni þar sem stór hluti Silfurliðsins svokallaða var meira og minna meiddur.
Helena Sverrisdóttir, körfuboltakona hjá TCU-háskólanum í Bandaríkjunum.
Helena hefur átt gríðarlega góðu gengi að fagna með liði sínu í bandaríska háskólaboltanum en í fyrra komst lið hennar áfram í úrslitakeppni sem var ekki síður Helenu að þakka. Í B-deild Evrópukeppni landsliða hefur Helena einnig farið á kostum með íslenska landsliðinu og er á meðal efstu kvenna í nær öllum tölfræðiflokkum.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona hjá Ármanni.
Helga Margrét varð Norðurlandsmeistari unglinga á nýju Íslandsmeti, 5.721 stig. Hún bætti metið stuttu síðar á keppni í Kaldo í Tékklandi, 5.878 stig. Hún varð þriðja á þessu sterka móti. Hún var í efsta sæti á heimslistanum í sínum aldursflokki á árinu en varð að hætta þátttöku á EM unglinga í Serbíu vegna meiðsla. Íslandsmet hennar hefði dugað til sigurs á EM. Henni var síðar boðin þátttaka á frjálsíþróttamótinu í Götzis í Austurríki á næsta ári, fyrstri íslenskra kvenna.
Hólmfríður Magnúsdóttir, knattspyrnukona hjá Kristianstad í Svíþjóð.
Hólmfríður lék í sænsku efstu deildinni á liðnu tímabili og var meðal bestu leikmanna Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar. Liðið fór illa af stað en náði sér á strik undir lokin og bjargaði sér frá falli. Hólmfríður lék einnig frábærlega með íslenska kvennalandsliðinu sem tók þátt í lokakeppni Evrópumótsins í Finnlandi í sumar. Þar skoraði Hólmfríður eina mark Íslands á mótinu, skallamark gegn Frakklandi í fyrsta leik liðsins á mótinu. Hún samdi í haust við bandaríska liðið Philadelphia Independence og leikur með því á næsta tímabili.
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður hjá Ægi.
Jakob Jóhann setti mörg Íslandsmet á árinu. Nú síðast sló hann eigið met í 50, 100 og 200 metra bringusundi á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug. Þessi met hefðu dugað honum til ágæts árangurs á Evrópumótinu í 25 metra laug. Í 50 metra laug keppti Jakob Jóhann meðal annars á HM50 á Ítalíu og náði þar ágætum árangri og bætti öll Íslandsmet sín. Í 200 metra bringusundi á hann 31. besta tíma Evrópu í ár.
Jón Arnór Stefánsson, körfuboltamaður hjá CB Granada á Spáni.
Jón Arnór lék heima á síðasta tímabili og varð Íslandsmeistari með KR í vor. Hann var jafnframt kosinn besti leikmaður Íslandsmótsins fyrir frammistöðu sína með KR sem varð deildarmeistari og deildarbikarmeistari ásamt því að liðið lét til úrslita í bikarkeppninni. Eftir tímabilið lék Jón með ítalska liðinu Benetton Treviso í úrslitakeppninni þar í landi og stóð sig mjög vel. Hann samdi svo við spænska liðið CB Granada í haust og er að komast á fullt þar eftir að hafa þurft að glíma við bakmeiðsli drjúgan hluta vetrar.
Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.
Ólafur lék á árinu sitt síðasta tímabil með spænska liðinu Ciudad Real þar sem hann hefur verið afar sigursæll. Hann hélt áfram að raka inn verðlaununum en Ciudad varð spænskur meistari enn eitt árið og vann Meistaradeildina annað árið í röð eftir ótrúlega úrslitarimmu gegn Kiel. Eins og í fyrra var Ólafur allt í öllu í úrslitaleikjunum. Hann kvaddi svo Spán og hélt til Þýskalands aftur þar sem hann hefur verið meðal bestu manna Rhein-Neckar Löwen á tímabilinu. Ólafur lék enga landsleiki á árinu þar sem hann var í fríi en kemur væntanlega sterkur inn á Evrópumótið í Austurríki í janúar.
Þóra B. Helgadóttir, knattspyrnukona hjá LdB Malmö í Svíþjóð
Þóra átti frábært ár. Hún varði mark íslenska landsliðsins á árinu og lék tvo af þremur leikjum Íslands í lokakeppni EM. Í norsku deildinni átti hún einnig gífurlega góðu gengi að fagna. Hún lék með liðinu Kolbotn sem varð spútniklið deildarinnar og endaði í fjórða sæti sem var ekki að litlu leyti Þóru að þakka. Hún hlaut fyrir vikið stærstu verðlaun þar í landi þegar hún var valin knattspyrnukona Noregs. Til viðmiðunar fékk verðlaunin hjá körlunum norski miðvörðurinn Brede Hangeland sem leikur með Fulham og er á meðal bestu varnarmanna ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir tímabilið samdi hún við LdB Malmö í Svíþjóð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 






Þessi þungu högg
Eli Manning vann Brady aftur í Super Bowl
Stund hefndarinnar hjá Patriots
Real Madrid á toppnum
Rannsókn á meintri lyfjamisnotkun Armstrong hætt