ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Milli fimm og sex þúsund í miðbænum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:19 › 23. desember 2009
Fjöldi fólks hefur lagt leið sína á Laugaveginn í dag. Myndin er úr safni.

Fjöldi fólks hefur lagt leið sína á Laugaveginn í dag. Myndin er úr safni. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu áætlar að milli fimm og sex þúsund manns hafi verið samankomnir í miðborg Reykjavíkur í kvöld. Nú fer hver að verða síðastur að kaupa jólagjafir enda loka flestar verslanir í miðbænum klukkan ellefu í kvöld.

Að sögn lögreglu hafa engin vandamál komið upp og hefur umferð gengið vel fyrir sig, enda veður með ágætu móti. Þrír hafa þó verið teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.