Hin 26 ára gamla Lisa Smith, sem býr í London á Englandi, hefur frá því á unglingsárunum alltaf lagst í flensu í kringum jólin. Eða svo hélt hún að minnsta kosti þar til hún komst að því á dögunum að hún er með ofnæmi fyrir grenitrjám.
Á mörgum heimilum koma jólin ekki fyrr en jólatréð er komið upp í stofunni. Smith, sem ávallt hefur haft alvöru jólatré í stofunni hjá sér, hefur varla getað haldið jólin á undanförnum árum vegna flensueinkenna.
„Alveg frá því fyrstu grenitrén komu upp í verslunum þá fannst mér ég alltaf vera með flensu. Jafnvel á jóladag langaði mig bara að sofa í staðinn fyrir að borða góðan mat og opna gjafir,“ segir Smith sem starfar sem sundkennari.
Það var unnustu hennar, hinn 27 ára gamli Phil French, sem ákvað að kanna málið nánar. Hann settist fyrir framan tölvuna kvöld eitt og fann það út að hugsanlega væri Smith með ofnæmi fyrir jólatrjám. Sá grunur reyndist á rökum reistur þegar Smith fór í ofnæmispróf á dögunum. Nú hefur Smith skipt út alvörujólatré fyrir gervijólatré.
„Þetta verður í fyrsta skipti í meira en áratug sem ég get haldið eðlileg jól. Það verður mkill léttir að opna gjafir og borða jólamatinn án þess að líða illa,“ segir hún.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu