Þrátt fyrir að miklar vetrarhörkur hafi látið á sér kræla víðsvegar í Evrópu undanfarna daga er engan bilbug að finna á forseta Kasakstans, Norsultan Nazarbayev. Hann vill að fleiri diplómatar flytji til höfuðborgarinnar Astana til að verða vitni að gríðarlega hörðum vetrum þar.
„í dag er bara 30 stiga frost. Þetta styrkir bara andann í okkur,“ sagði Nazarbayev, þegar hann hélt fund með stjórnarerindrekum í forsetahöllinni á dögunum. Forsetinn, sem hefur verið við völd í tuttugu ár, gerði Astana að höfuðborg landsins árið 1997 og hefur kostað miklu til til að gera hana nútímalegri. Nú vill hann að stjórnarerindrekar og aðrir landsmenn flytjist búferlum til borgarinnar til að verða vitni að vetrarhörkunum.
Hingað til hafa stjórnarerindrekar verið frekar tregir til að flytja til borgarinnar þar sem gríðarlegar vetrarhörkur gera yfirleitt vart við sig marga mánuði ársins. Halda þeir sig frekar í gömlu höfuðborginni, Almaty, þar sem frostið er ekki jafn mikið. En Nazarbayev lítur á björtu hliðarnar:
„Borgin er svo hrein að jafnvel bakteríur geta ekki lifað í þessum kulda. Þannig að við njótum þess að lifa lengi,“ segir hann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung